Við meðhöndlum

Golfolnboga

Meira um golfolnboga og fylgikvilla hans hér.

Hvað er golfolnbogi?

Epicondylitis medialis eða golfolnbogi er hugtak yfir álagsskaða sem verður á innanverðum olnboganum þar sem hópur framhandleggsvöðva festist. Vöðvarnir í þessum hópi geta beygt úlnlið og fingurlið.

Olnbogaverkir? Pantaðu tíma í dag

Flýtileið [Vis]

    Hvað veldur golfolnboga?

    Golfolnbogi getur m.a. stafað af endurteknu álagi á vöðvana á innanverðum framhandleggnum, t.d. við líkamlega vinnu eða tómstundaiðkun. Hreyfing sem krefst þess að beygja og snúa úlnliðnum ítrekað getur valdið ofreynu á svæðinu á innanverðum olnboganum þar sem þessir vöðvar festast.

    Þetta álag mun valda því að bólguástand kemur upp í vöðvasin.

    Golfolnbogi

    Líffærafræði og mismunagreiningar

    ​Við allar hreyfingar framhandleggs og úlnliðs eru notaðir vöðvahópar sem festa sig annað hvort á utanverðan eða innanverðan olnbogaliðinn. Eins og áður segir er það ytri hluti olnbogabeinsins sem verður fyrir áhrifum.

    Í langflestum tilfellum (u.þ.b. 90%) verður m. extensor carpi radialis brevis sérstaklega fyrir áhrifum. Þessi vöðvi lyftir t.d. hendinni frá borðinu og getur snúið hendinni og úlnliðnum 90 gráður svo þumalfingur snúi upp á við, eins og þegar fólk heilsast með handabandi.

    Venjulega getur viðvarandi tog leitt til bólgu í sinafestunni en einnig  verður hrörnun (niðurbrot) á hyaline brjóskinu. Þetta ofálag á sinavef sem veldur litlum rifum í vefnum kallast tendinopathy.

    Tennisolnbogi er algengasta orsök olnbogaverkja í heimilislækningum.

    Tennisolnbogi er mismunagreining sem hefur áhrif á u.þ.b. 1-2% fullorðinna, oftast í aldurshópnum 35-50 ára. Skaðinn ræðst að miklu leyti af mekanísku umhverfi og langvarandi einsleitu hreyfimynstri. Einnig er mikilvægt að hafa í huga  almennan lífsstíll (hreyfing, svefn, streita, mataræði) og heilsu.

    Efins um hvort við getum aðstoðað

    Bókaðu 15 mínútna óskuldbindandi samtal.

    Bókaðu ókeypis skimun
    Golfolnbogi

    Einkenni golfolnboga

    Einkenni golfolnboga geta verið verkir á innanverðum olnboga sem versna þegar hendin er notuð. Sársaukinn getur til dæmis komið fram við athafnir eins og að bera innkaupapoka, hella, drekka og við aðra almenna handavinnu.

    Í mörgum tilfellum kemur sársaukinn aðeins fram nokkrum dögum eftir mikið álag. Sársaukinn getur verið púlsandi og leiðir oft niður framhandlegginn í átt að úlnliðnum.

    Orsakir golfolnboga

    Allar vísbendingar benda til þess að golfolnbogi komi fyrst og fremst fram vegna endurtekins einhliða álags. Þetta getur til dæmis gerst við notkun á skrúfjárni, málningarpensli eða hjólbörum.

    Með öðrum orðum getur maður auðveldlega fengið golfolnboga án þess að hafa spilað golf.

    Osteopatísk nálgun á golfolnboga

    Sársaukinn sem kemur fram við golfolnboga er vegna bólgu. Orsakir bólgu eru alltaf margþættar. Mekaník, taugafræði, efnafræði og blóðflæði stuðla alltaf að þróun á bólgu. Það getur því verið nauðsynlegt að kanna hvort að einhverjir af þessum þáttum eru að viðhalda verknum ef hann fer ekki eftir nokkra mánuði.

    Lélegt blóðflæði getur stuðlað að því að blóðmagnið sem kemur út í handlegginn til að lækna golfolnbogann er ekki nægt.

    Á sama tíma getur lélegt flæði frá svæðinu valdið því að blóðið stöðvast sem veldur auknum þrýstingi sem svo eykur verkina. Aukin eða minnkuð taugavirkni ulnartaugarinnar á framhandleggnum er líka hluti af orsökinni.

    Aðrar meðferðartegundir

    Markmiðið í meðhöndlun á golfolnboga er að hjálpa vöðvasininni sem festist á innanverðan olnbogann að gróa. Bólgueyðandi lyf eins og íbúprófen geta linað sársaukann og við mikinn sársauka getur læknir sprautað sterum (kortisóni) sem heldur bólgunni á svæðinu í skefjum.

    Að auki meðhöndla margir sjúkraþjálfarar og meðferðaraðilar golfolnboga með því að nota:

    • Nálastungur
    • Laser
    • Ómskoðun
    • Rafmagnsmeðferð
    • Stuðbylgjumeðferð (Shockwave)
    • Nudd
    • Þjálfun

    Osteópati tekur öll kerfi líkamans með inn í myndina, þar á meðal lífeðlisfræði, taugakerfi, blóðrás, efnaskiptakerfi og sálfræðilega þætti.

    Út frá þessum kerfum finnur osteópatinn orsakasamböndin og meðhöndlar þau með því að nota mismunandi virkjunar- og meðhöndlunartækni auk þess að gefa góð ráð um forvarnir og endurhæfingu.

    Batahorfur golfolnboga

    Batahorfur golfolnboga fara eftir mörgum mismunandi þáttum; Hversu lengi hann hefur verið til staðar, hvaða starf þú hefur og hver almennna heilsan þín er. ​

    50-70% fólks með golfolnboga jafna sig og verða einkennalausir. Horfur eru bestar með skjótri meðferð strax eftir að skaðinn hefur átt sér stað.

    Venjulega er golfolnbogi til staðar í nokkra mánuði. Í alvarlegum tilfellum getur ástandið varað í nokkur ár ef orsökin finnst ekki og er ekki meðhöndluð vel.

    Ivar Dagsson
    Ivar Dagsson

    Meðstofnandi, forstjóri Osteonordic, löggiltur osteópati og sjúkraþjálfari.

    Golfolnbogi

    Góð ráð gegn golfolnboga

    Gott er að forðast hreyfingar og álag sem veldur sársauka. Ef þú ert í vinnu sem krefst þess að þú notir hendurnar er hægt að prófa að nota hina höndina fyrir sum verkefnin til að létta á álaginu. Fyrir suma hjálpar það að nota olnbogabindi, sem getur létt á vöðvasininni.

    Bólgueyðandi lyf eins og íbúprófen geta linað sársaukann þar sem það er bólgan sem er að valda honum. Bólgan er hins vegar líka nauðsynleg til að svæðið grói og þess vegna getur verið æskilegt að forðast slík lyf,  nema verkurinn sé of mikill.

    Golfolnbogi

    Algengir tengdir kvillar

    Fannst þú ekki það sem þú varst að leita að?
    Golfolnbogi

    Hafðu samband við okkur í dag

    Við erum alltaf tilbúin að hjálpa. Ef þú hefur einhverjar spurningar um Osteonordic, hvenær og hvar við opnum eða eitthvað allt annað – ekki hika við að hafa samband við okkur.