Osteonordic Reykjavík
Bókaðu tíma á netinu
Við trúum því að góð heilsa sé ekki forréttindi heldur grundvallarréttindi.
Viktor Steinn Bonometti
MSc. Osteopathy. Aðeins hægt að bóka í gegnum: +354 539 5003 – Info@osteonordic.is
Verð:20.000 kr.
Timalengd:ca. 45 min
Antonia Sigtryggsdottir
MSc. Osteopathy
Kristján Henry Richter
BSc. Sport Science, Massage Therapist, Osteopathic Student.
Anna Pála Magnúsdóttir
BSc. Physiotherapist & Osteopathic student
Velkomin í Osteonordic
Upplifðu osteópatíumeðferð á heimsmælikvarða í hjarta Evrópu með Osteonordic. Okkar uppruni er í Danmörku, þar sem eru nú yfir 19 osteópatíustöðvar. Nú erum við að stækka við okkur og bjóða upp á okkar hágæða þjónustu á fleiri stöðum í Evrópu. Við hjá Osteonordic erum stolt af því að geta boðið upp á öfluga starfsemi og nýstárlega tækni okkar.
Við trúum því að góð heilsa sé ekki forréttindi heldur grundvallarréttindi.
Þess vegna erum við staðráðin í að veita persónulega og alhliða osteopatíska meðhöndlun sem hjálpar skjólstæðingum okkar að hreyfa sig, vinna og lifa sársaukalaust.
Vinsæl leitarorð
Iðraólga
Grindarverkir
Höfuðverkur eftir höfuðhögg (posttraumatic headache)
Hopparahné (Jumper’s knee)
Tíðaverkir
Hælspori
Hlauparahné (runner’s knee)
Legslímuflakk – Endómetríósa
Fannst þú ekki það sem þú varst að leita að?
Vilt þú taka þátt í ferðalaginu okkar?
Hægt er að sækja um starf í gegnum eyðublaðið neðst.
🇮🇸 Í fullri vinnu á Íslandi
Osteópati á Reykjarvíkursvæðinu
Þar sem Osteonordic, þekkta danska osteópatíu stofan, siglir í átt að stórkostlegu landslagi Íslands, vantar okkur einstaka osteópata til að hjálpa okkur með að breiða osteópatíu út á Íslandi.
🇮🇸 Í fullri vinnu á Íslandi
Ferðalagið okkar er rétt að byrja
19+
Stofur i Skandinavíu
130+
Osteópatar / Sjúkraþjálfarar
4.000+
Vikulegar meðferðir
500+
5-stjörnu umsagnir
Ferðalag okkar við útbreiðslu osteópatíu
Frá árinu 2014 hefur Aarhus Osteopati, núna Osteonordic, verið staðsett í Árósum. Í gegnum árin höfum við fundið fyrir að eftirspurn og áhugi á osteópatíu hefur farið vaxandi. Við vildum leggja okkar að mörkum með því að bjóða upp á það starf sem við höfðum verið að vinna á fleiri stöðum. Við erum núna alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í að auka lífsgæði fólks. Við stefnum á að bjóða upp á samþættar heilbrigðislausnir fyrir fólk um alla Evrópu.
Hvar sker osteópatían sig úr?
Stór hópur fólks þjáist af vanlíðan eða sársauka. Margir hafa reynt alls kyns meðferðir þar sem sumar þeirra hafa hjálpað en aðrar ekki.
Við hlúum að þessum hópi sem og mörgum öðrum sem þjást af meiðslum hér hjá Osteonordic.
Hér hjá Osteonordic erum við sérfræðingar í að takast á við vandamál í öllum kerfum líkamans (sem dæmi má nefna blóðrásarkerfi, innri líffæri, hormóna- og efnaskiptakerfi, geð, ósjálfráða taugakerfið og hin ýmsu taugakerfi sem við getum stjórnað). Við skoðum ekki einungis stoðkerfið (vöðva, sinar og bandvef) eins og margir aðrir meðferðaraðilar.
Þverfaglegt starf milli stöðva
Á stofunum okkar leggjum við mikla áherslu á þverfaglegt starf. Við höfum meðal annars lærða osteópata, Heilsunuddara sjúkraþjálfara og Íþróttafræðinga. Þetta býr til gott samstarf og eykur gæði meðferða á sjúklingum okkar.
Það er alltaf hægt að finna meðferð sem hentar hverjum og einum. Sjúklingar geta verið vissir um að orsök vandans/verkja sé nánast alltaf fundin og meðhöndluð af hinum ýmsu meðferðaraðilum.
Markmið okkar er að útskýra hvers vegna líkaminn virkar ekki eins og hann ætti og hvað býr að baki verkjanna eða því sem er ekki að virka í líkamanum. Hér leggjum við mikla áherslu á samskiptum, þannig að einstaklingar séu hluti af meðferðarferlinu. Sambland af handvirkri sérfræðimeðferð, meðferðarþjálfun á eigin líkama og virkni er einstaklega áhrifaríkt í tengslum við að lina sársauka.
Alhliða, sjúklingamiðuð nálgun okkar verður ekki bara bundin við heilsustöðvar okkar. Við stefnum á að nýta fjölbreytta sérfræðiþekkingu okkar og þverfaglega nálgun til að efla heilbrigðisþjónustu og verkjameðferð.
Þetta á ekki einungis við um þekkingu sem við deilum með sjúklingum okkar heldur einnig til að stuðla að alþjóðlegu samstarfi og námi meðal meðferðaraðila. Við teljum að þetta auki gæði meðferða og stuðli enn frekar að betri upplifun.
Algengar spurningar
Við fáum margar spurningar um osteópatíu, val á meðferðaraðila eða praktískar spurningar um, meðal annars, fatnað. Við höfum því valið að helga einni síðu öllum þeim spurningum sem okkur hafa borist. Það er líka alltaf velkomið að hafa samband við okkur. Hægt er að finna allar spurningar á síðunni með því að smella hér að neðan.
Af hverju er osteópatía dýrara en sjúkraþjálfun?
Osteópatía er dýrari en sjúkraþjálfun víðast hvar í heiminum því flestir osteópatar eru nú þegar með sjúkraþjálfaragrunn eða aðra menntun að baki og þar með lengri menntun.
Er osteópatía sársaukafull?
Í grundvallaratriðum, nei. Sem osteópati hefur maður margar leiðir til að leysa vandamálið og þess vegna þarf meðferðin ekki að vera sársaukafull. Hins vegar getur meðferð beint að sársaukafullu vandamáli oft orðið sársaukafull.
Hvað er osteópatía?
Osteopatía er handvirkt meðferðarform, þ.e. að verkfæri okkar séu aðeins þekking okkar og hendur. Osteópati skoðar og meðhöndlar öll líkamskerfi líkamans – bein, vöðva, taugar, eitlar, innri líffæri, æðar o.s.frv. Því lítur osteópatía á líkamann sem eina heild. Tilgangur osteópatíu er að endurheimta jafnvægi í og á milli kerfa líkamans, sem hjálpar líkamann til að endurheimta eðlilega virkni og lækna sjálfan sig.
Hver er munurinn á osteópatíu og annarri meðferð eins og sjúkraþjálfun?
Á Íslandi hafa osteópatar yfirleitt lokið sjúkraþjálfaranám áður en þeir fara í osteópatíunám. Hins vegar kemur fjöldi meðferðaraðila okkar einnig með annan bakgrunn í farangri sínum, t.d. íþróttafræði, kírópraktor eða heilsunudd. Grundvallarmunurinn á osteópatíu og sjúkraþjálfun er sá að osteopatía er almennt heildrænni og osteópati meðhöndlar líkamskerfi eins og blóðrásina, innri líffæri, öll taugakerfi, hormóna o.fl. sem sjúkraþjálfari gerir ekki.